Þetta námskeið er ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
HSN – býður starfsmönnum sínum upp á grunnnámskeið í útivist og fjallgöngum. Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar kemur að almennri útivist og fjallgöngum s.s. undirbúningi ferða, búnaði, öryggi, næringu, þjálfun, leiðarvali, skóreimingar svo eitthvað sé nefnt. Námskeiðið er í senn bóklegt og verklegt og Fjallabókin eftir Jón Gauta Jónsson er innifalin í verði námskeiðsins. Farið verður í göngu báða dagana ef veður leyfir og þarf fólk því að koma búið til göngu.
Leiðbeinandi: Guðmundur Örn Sverrisson. Guðmundur starfar sem framkvæmdastjóri Hugsjónar ehf. sem á og rekur Fjallafjör, var fararstjóri hjá Ferðafélaginu Útivist á árunum 2013-2021 og skálavörður á árunum 2011-2012. Hann hefur meðal annars lokið reglubundnum námskeiðum í skyndihjálp í óbyggðum, rötun, vetrarfjallamennsku, undirbúningsnámskeiði í jöklaleiðsögn, jöklaleiðsögn 1 hjá AIMG, hópstjórn og komið að þjálfun fjölmargra fararstjóra.
Hvar og hvenær: Námskeiðið fer fram í Skagafirði helgina 27 og 28. apríl 9:00-17:00 hvorn dag.
Lengd: 16.klst
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|